UM MIG

Portrettmynd
Forvitnin hefur haldist nokkuð stöðug.
Ég hef unnið við sjónvarp, tölvuleiki, auglýsingar, fjarskipti, hönnun, tækni og greiðslulausnir. Framleitt Idol, unnið að EVE Online, byggt upp hönnunarstúdíó og komið að alls konar verkefnum sem byrjuðu sem hugmynd á blaði og enduðu sem eitthvað sem fólk gat séð, notað eða tekið þátt í. Það sem hefur haldist nokkuð stöðugt er forvitnin. Mér finnst gaman að skilja hvernig hlutir virka, finna út hvernig þeir gætu virkað betur - og helst fá gott fólk með mér í það.
Mér finnst gaman að skilja hvernig hlutir virka - og hvernig þeir gætu virkað betur.

02 / TÓNLIST
Utan vinnu hefur tónlist líklega verið stærsti rauði þráðurinn. Ég lærði á píanó, söng í kór í tuttugu ár, vann árum saman í Skífunni og eyddi svo tveimur árum í að ferðast um heiminn sem bakraddarsöngkona með GusGus.
Í tveggja hæða rokkrútu, að sjálfsögðu.

Ferðamynd
04 / ÚT